2010-11-30

Sigurbjörn verður til

Mér hefur lengi blöskrað það sem Pjattrófurnar og Hlín Einars skrifa um karlmenn. Það virðist sem þær þekki bara eina tegund karla, aumingja.

Nú hefst greining og gagnrýni á skrifum Pjattrófna, Hlínar Einars og Margrétar Hugrúnar!

Það byrjar vel! Ég þurfti ekki að skrifa meira en eina athugasemd á blogg Margrétar Hugrúnar (sem er ein af pjattrófunum) áður en mér var vísað á dyr.


Þetta var greinilega nóg til þess að Margrét Hugrún komst í ritstjórnargírinn. Það má nefnilega ekki hver sem er segja hvað sem er á blogginu hennar. Næsta athugasemd birtist nefnilega aldrei:

Samt sem áður lét Margrét Hugrún það eftir sér að svara:


Það sem er furðulegast við bloggið hennar Margrétar Hugrúnar er að hún virðist ekki geta tekið gagnrýni en í staðinn fyrir að svara málefnalega fyrir sig þarf hún að ráðast persónulega á manneskju sem hefur gert grín að henni (http://tiskublogg.blogspot.com). Þegar henni er bent á að hún fer yfir strikið breytir hún færslunni og þvertekur fyrir að hafa verið með skæting.

Mér ofbauð og í von um að það dugði að skrifa undir fullu nafni, skrifaði ég þetta (þó ekki undir réttu nafni, en hvað með það, netfangið var rétt).

Þetta er upphafið á langri leið í gegnum þrjú blogg sem eru skrifuð af konum sem vilja kalla sig femínista, en eru eitthvað allt annað.

6 ummæli:

hildur sagði...

Vei!

Það er kominn tími til að karlmaður láti í sér heyra varðandi þessar fullyrðingar þeirra um kynið!

Nafnlaus sagði...

Þessi blogg eru alveg að fara með mig! Þessi færsla hjá Hlín fékk mig næstum til að Gubba:

http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Hlin_Einars/aldrei-minnast-a-thetta-vid-kaerastannkaerustuna_

"„Hvert stefnum við?“

Plís, stelpa. Það verður að vera hann sem minnist á framtíð sambandsins...gaurar meika ekki að láta ýta á sig og langar að vera í núinu og njóta þess með þér. Ef þetta er að fara eitthvað þá muntu vita það. Ef ekki muntu vita það líka."

Sigurbjörn sagði...

Hlín er í greiningu. Meðan við bíðum getum við velt því fyrir okkur af hverju Íslendingar halda svona mikið framhjá ...

http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Hlin_Einars/thetta-er--buid

Athyglisvert innlegg í umræðuna um jafnrétti kynjanna ... eða ekki.

Nafnlaus sagði...

Ég er svo ánægð að það sé að skapast umræða um þessi mál og að ekki bara ein týpa sé að tjá sig.

Ætla að lesa öll gagnrýnis bloggin þín rækilega vel eftir næsta próf!

Kv. Kvk femínisti

Kristín H sagði...

Ég mun fylgjast með öllu sem þú skrifar hér, frábærar færslur hjá þér!

Tóta sagði...

ég er ánægð með færsluna þína Sigurbjörn. Færslur pjattrófanna eru svo fullar af fordómum að það hálfa væri nóg, eins og t.d. http://pjattrofur.eyjan.is/2010/11/13/geta-karlar-og-konur-bara-verid-vinir/