Það sem fáir vita er að áður en þessi færsla birtist hafði Margrét Hugrún skrifað eitthvað allt annað, nefnilega færsluna með titlinum Konur í fjölmiðlum. Færslan byrjaði svona:
Mikið finnst mér skrítið að sjá forsíðu Eyjunnar nú þegar Pjattrófur og Svart á Hvítu eru horfnar úr stofunni sem þær skipuðu með ...Jafnóðum og færslan birtist, hvarf hún (fyrir utan þetta setningarbrot sem finnst á Google). Sorglegt, því byrjunin lofaði góðu. Maður fær á tilfinninguna að það sem kom á eftir var gagnrýni á nýja eigendur Eyjunnar fyrir að hafa fært Pjattrófurnar neðar á forsíðu Eyjunnar, en eins og flestir vita eru nýjir eigendur Eyjunnar líka eigendur bleiks.is (og annarra sóðasíðna sem ég ætla ekki að fara út í núna). Ég vorkenndi Margréti Hugrúnu og skrifaði Pjattrófunum því tölvupóst, af því að mig langaði að lesa upprunalega pistilinn, áður en ég skrifa grein sem á að fjalla um það hversu lítið konur sjást í íslenskum fjölmiðlum (t.d. í þáttum eins og Kiljunni).
Tíu mínútum síðar barst svar. Margrét Hugrún vildi fá símanúmerið mitt. Ég svaraði um hæl:



